af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2006-12-14

Lúsíuhátíðin fór vel fram. Vöknuðum fyrir allar aldir til að Jón myndi ekki missa af neinu í skólanum sínum og við gömlu brýnin vorum mætt fyrir kl. 8 í Geocentrum með Balla piparköku- og eyrnabólgudreng til að hlýða á Norrlandskórinn, drekka glögg og maula piparkökur og saffrangular lússebollur. Eftir hádegið var svo Lúsíuhátíð hjá Jóni. Þau sungu ábyggilega 10 lög, hvert a.m.k. 4 erindi og Jón piparkökugubbi las úr Aðventuversum.

Er að komast í jólaskap. Skrifaði 5 jólakort í hádeginu og sendi, búnað kaupa allar jólagjafir og hef meiraðsegja haft tíma fyrir eftirþanka.. ætla í bæinn á morgun og skipta. Til að toppaða fékk ég lánaðan og fjölfaldaði diskinn Jul i Betlehem með Carólu ;-)

4 Komment:

Blogger krummi said...

Carola! Kristín er ekki í lagi meððig???


Var sjálfur alvarlega að hugsa um að kaupa diskinn til að reta sænsku fjölskyldumeðlimina ...

8:36 PM

 
Anonymous Hildur syss said...

Geturðu gefið okkur Carolu? Valgerður yrði mjög glöð :) sjáumst á þri!

9:01 AM

 
Blogger Kristin said...

held ég geti ekki gert afrit af afriti.. en ég mæti með diskinn!

5:40 PM

 
Blogger Kristin said...

Og nei.. það er ekki alltílæi með mig. Takk annars fyrir að spyrja :)

5:41 PM

 

Sendu inn athugasemd

<< Home