Börn eru besta fólk! Eða hvað? Konur eru konum verstar og ég held að börn séu mömmum verst.. Pabbinn í vinnuferð og mér líður eins og grínmynd, öllu snúið á hvolf í þessar sekúndur sem ég lít undan. Stolist í súkkulaði, klíningur í sófa og teppi, búið að moka úr hveitidallinum uppá borð, niðrá gólf og nota í bílaleik, í baðinu er öllu vatninu skólfað útúr baðinu og útum allt baðherbergi, m.a. yfir blaðastandinn, svo ég tali nú ekki um ruslið sem þau skilja eftir sig útum allt! Eins gott að pabbinn komi í kvöld!!!

4 Komment:
Hljómar nú bara eins og á öðru hverju barnaheimili. Myndi ekki hafa miklar áhyggjur.
Kramar från Tromsø, snart Hammerdal.
8:43 PM
jaeja nú er ég kominn heim! drengirnir standa vel greiddir í beinni röd og bída eftir thví ad mér thóknist ad koma og meta hvursu slétt rúmteppid er á rúminu sem their voru ad búa um. ... not ...
the pab
6:50 AM
lím og glimmer út um öll gólf, statíf og lampi detta á nýja parketið endrum og eins, hafragrautur í baðhandklæðinu, skæri í rúminu mínu, óskiljanlegur pollur inn í þvottahúsi, pizzudeig í stofumottunni, hálfétinn jólasveinasúkkulaðisleikjó á símanum, sag í ganginum eftir jólatréskurð... samt er allt eitthvað svo fínt! Velkomin í Geitlandið :)
9:35 AM
átta vikur í beibí. Úffbara, hvað er ég eiginlega að kalla yfir mig?
11:13 AM
Sendu inn athugasemd
<< Home