Baldur er farinn að ganga! Tók sín fyrstu skref inná skrifstofunni minni í gær, nákvæmlega 13 mánaða :)

b
af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód
Baldur er farinn að ganga! Tók sín fyrstu skref inná skrifstofunni minni í gær, nákvæmlega 13 mánaða :)

úr mér allur kraftur! Veikindin tóku heldur betur dívu. Magapínu splæst oná allt með tilheyrandi uppúr og niðrúr. Allir fallnir nema ég! Óvanalegt að ég standi ein uppúr svona. SKiptir heldur engu, þó mér sé ekki illt í maganum er gersamlega úr mér allur kraftur.
Fyrsta helgin í rúman mánuð sem ég er heima hjá mér með fjölskyldunni og við höfum ekkert fyrir stafni. Lesið uppí rúmi, morgunmatur rétt fyrir hádegi og hádegis/kveldmatur um 3 leitið. Sannkallað letilíf. Fórum í skógarferð í rigningunni og leituðum að froskum en sáum enga. Líklega of kalt. Settum strákana í heitt bað eftir gönguna. Fengu súkkulaði í baðið. Það er alger snilld! Báðir með hita daginn eftir..
Naesti fundur i Vin, svo Napoli (innifalin ferd til Etnu!), svo Azoreyjar (fleiri eldfjoll..), Sicily, Iceland, hm.. Aetla amk ad troda mer med til Azoreyja og taka Palma med ha!
Er komin til Dublin-ar. Ein og ein og aaaalein! Hrikalegt ad skilja vid Baldur og Jon og Palma a flugvellinum.. A flugvellinum sa eg ekkert nema born. Meiradsegja sum raudhaerd! Settist uppi straeto og svo annan og gekk og gekk thangad til eg fann hotelid sem er nu ekki af verri endanum, kastali fra 12 old! Voru ad spila tonlist ur Shrek her adan og eg fekk algert tilfelli.. Vildad Jon Logi vaeri herna lika. Er annars buin ad sofa a minu graena i dag. Verd vist ad lita a thetta sem taekifaeri til ad hlada batteriin.
Stundin milli 7 og 8 í morgun þegar ég kúrði uppí rúmi með daggann og leyfði börnunum að horfa afskiptalaust á sjónvarpið reyndist dýrkeypt. Hafði gleymt að ganga frá örfáum súkkulaðimolum í skál á stofuborðinu. Jón var ekki nógu frekur á þá svo Balli náði í bita sem honum tókst að maka í hálfan sófann, flísteppið, gólfmottuna, allt andlitið og nýju trukkanáttfötin og í þann mund sem ég uppgötvaði slysið voru lakið og sængurfötin sömuleiðis útötuð í brúnni drullu! Balli sækir hvorki einn né tvo í hattinn sinn svo ég neyðist til að eyða næstu klukkutímum í þrif..