af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2005-07-24

Kláraði greinina á fimmtudaginn! Fæ hana vonandi ekki alblóðuga til baka..
Tökum einn dag í einu. Svo innilega EKKI minn stíll. Tvær kellingar á Seltjarnarnesi með tvær strákaskammir! Önnur heldur illviðráðanlegri. Veit ekki hvað er í gangi með Ball-kaída, kannski tennur, saknar kannski pabba, kannski illt í maganum og kannski bara matvandur og ofvirkur!!!! Rífur allar bækur úr hillum, nagar snúrur og togar í þær af öllum kröftum, rífur niður dúka, skríður undir alla sófa, stingur öllu uppí sig, ýtir á alla takka (meiraðsegja naglalakkaðar táneglur ömmu!), reynir af öllu afli að losa sig úr kerru sem hann er beislaður í, sleikir steina, klifrar upp tröppur og húrrar niður 2svar og 3svar sinnum á nákvæmlega sömu stöðum!
Jón Logi var ekki kallaður Búdda að ástæðulausu og kannski bara gott að ég fékk hann fyrst! Annars hefði maður kannski ekki lagt útí ....

2005-07-19

Jamm, búin að vera í fríi! Komin aftur ;) svona allavegana með línu, eða tvær...

Ætlum að lengja dvölina á LeKlak um nokkrar vikur. Hægt að ná í mig í sænska gemsann 0046730502383. Sendið bara sms!

ER enn með greinina hangandi yfir mér. Ætla að nota tímann meðan ég sit hér á Veddó...