Ást er sjórinn í sms-i
2005-04-23
2005-04-21
Sit í bílnum og hugsa um sumarið á meðan haglið drynur á framrúðunni. Klukkutími þangað til ég á að sækja Jón Loga. Ég er svöng. Baldur sefur. Í fyrsta sinn á ævinni læt ég verða að því að kaupa mér lúguborgara á McDonalds. Hvílík snilld! Ýti á takka, rúðan niður, hér er kortið, hér er borgarinn, 2 frumuveggir af nauti eða svo. Keyri aðeins lengra, legg bílnum og mmm sötra kókið upp milli klakanna. Þá gerist það. Hugmyndin fæðist! Fyrir mömmur með gríslinga, fyrir offitusjúklinga, fyrir gamla fólkið, letingjana og aðra hreyfihamlaða: Innkaupahöll fyrir akandi!
Í upphafi ferðalagsins færðu einskonar fjarstýringu í hönd sem þú notar til að velja vörur sem birtast á skjáum til hliðar við akreinina sem þú keyrir eftir. Innkaupahöllin inniheldur að sjálfsögðu stóra matvörubúð auk allskyns sérverslanna. Tilboð væru kynnt í gegnum útvarpið í bílnum. Lúgur með smakkkynningum. Í lok ferðarinnar afhendiru fjarstýringuna, borgar og færð poka með öllum vörunum. Ha, kannski doldið erfitt að taka á móti því. Nei sko, yndælt starfslið Hallarinnar myndi að sjálfsögðu raða pokunum í skottið og gegn vægu gjaldi fylgdi með liðugur og sterkur sirkusdvergur sem myndi við heimkomu skjótast upp úr kassa og bera dótið inn í hús! Taka svo bara strætó aftur í Höllina eða eitthvað..
Gleðilegt sumar
2005-04-17
Setjum Baldur ofaní dótakassann sinn og hrúgum dótinu ofan á hann. Tímum ekki að trufla Jón sem leikur sér úti á peysunni þó hitinn sé ekki nema 10 stig. Af misjöfnu þrífast börnin best og við hin líka held ég bara.
Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir. Jón Logi í riddarabúningi með boomerang. Nú eru riddarar aðalmálið og ég var göbbuð til að kaupa einhvern pínulítinn riddara í einni innkaupaferðinni um daginn. Þegar ég tók hann úr pakkningunum kom þetta í ljós!

Finnst ykkur viðeigandi að börn leiki sér með gaddakylfueftirlíkingar? (Ekki það að ég hafi vitað hvað gaddakylfa var fyrren þeir gerðu húsleit heima hjá Grétari Litháamorðingja)
2005-04-13
Jæja þá er það komið á hreint að við Balli förum til Vínar á EGU 2005 þann 24. apríl nk.
Komum heim rétt mátulega til að fíra Valborg.
Fundum nokkra snjóskafla á kvöldrölti við stjúpmæðgur auk risa paddna sem ollu hrollum. Vorið er að vinna.
2005-04-12
Í gær fór gulrótamauk í Baldurs búk og í morgun mátti finna í bleyju appelsínugulan ___!
One down...
Á kvöldin er talið niður. Baldur sofnaður og Jón Logi farin að geispa. Two down... Svo þarf að knúsa og kyssa og breiða yfir og ræða málin og um tíuleitið er hægt að hvísla: "Three down"..
2005-04-08
You Are 27 Years Old |
Er annars að hlusta á verstu íslensku barnaplötu ever. Mæli meðenni for a good laugh.. Babbiddíbú. Jafn vond og Eniga Meniga er góð. Olga missir sig alveg í söngnum.. "Söngurinn um lífið" er alveg kostulegur..
2005-04-07
Af grænum verkefnum: Bleikar pelagóníur á svölunum. Kóríander og rósmarín bíða eftir hlýrri svaladögum og fá stofugluggann í uppbyggingar- og sólskini. Þegar Álfrún kemur heim úr skólanum ætlum við (áp, jl og ég) að sá maís, ísbergsallati, risasólblómum og graslauk í sáningabakka. Þeir verða geymdir inni í 1-2 mánuði.
Var búin að lofa að loka fyrir veikindatal, en þetta verður að vera með í dagbók mömmunnar.
Baldur fór í 6 mánaða skoðun og sprautu í gær. Fór ekkert að gráta. Fékk hita í gærkveldi og er ennþá með smá vellu. Pínu rellinn kallinn. Læknirinn gaf honum hæstu einkunn.

2005-04-06
Var miklu hressari þegar ég vaknaði í morgun. Fór í framhaldstékk í morgun sem gaf til kynna að sýkingin væri á undanhaldi.. og ekki meir um það. Finnst alveg hrikalegt að ég svona ung og hress sé að þylja einhverjar sjúkrasögur yfir ykkur greyin mín.
Pálmi er þessa stundina að flúga norður til Kiruna. Ætlar að redda Saltalúokta sem er örugglega ekki skrifað svona, en sagt. Leigir bíl og keyrir eftir sveitavegum í Lapplandi, þeysir yfir stöðuvötn á snjósleða og gistir á Fjällstation. Spennandi ferð fyrir ævintýraprinsinn minn. Doldið eins og í Múmínálfunum þegar Múmínpabbi fór í ævintýraleit. Nema hva hann nam Múmínmömmu á brott sem þótti sárt að skilja Múmínsnáðan einan eftir í Múmínhúsinu. Múmínmamma stakk fljótlega af og snéri heim.
2005-04-05
Var í rannsóknum í allan dag uppá spítala. Viðkvæmu græjurnar í góðu lagi en einhver sýking í maganum, kannski í eitli. Mátti ekkert éta og einu blöðin á biðstofunum voru með endalausum mataruppskriftum og tilheyrandi gúmmilaðimyndum.. gaman ha?
mér er illt í maganum. Er búið að vera illt í maganum síðan um helgina og nú er ég líka með hita.. ætti að vera botnlanginn, en hann er farinn fyrir löngu!
2005-04-01
nu er eg buin ad runta um baeinn og fara i allar thaer budir sem mig hefur lengi langad i! Keypti tripptrapp handa Baldri og for i Biltema og slo i gegn med tvö argandi smaborn, upprullada gummimottu a öxlinni og ny ray baaaan a nefinu... stodst ekki matid og skellti einum mp3 spilara i körfuna while i was at it
