af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2005-03-31

keyptum bíl

2005-03-30

Bakslög.
Vorið ætlar að láta bíða eftir sér. Frysti rækilega í nótt og kuldagallinn og -stígvélin sem komin voru hálfa leið útí skúr í geymslu dregin fram að nýju. Jón Logi reynir að fylla uppí stórt gat sem myndast í fjölskyldunni þegar Álfrún fer að heiman með því að væla útí eitt. Veikindi í fjölskyldunni.

2005-03-26

Til hamingju með AMMALIÐ!!!

Þetta helst af Jóni Loga.
Pabbinn í speglinum: "ég verð nú að fara að losna við hana þessa.."
Jón: "Hefuru bætt eitthvað á þig elskan?"

Úr orðabókinni.
Að vera illt í hárinu = að vera með hausverk
apamúss = fræðsluspóla um lífið í regnskógunum. Enn í miklu uppáhaldi.
viltu liggja hjá mér? = ertu til í að bursta í mér tennurnar, hátta mig, lesa fyrir mig sögu og syngja? M.ö.o. ég er þreyttur!

Brallið við matarborðið.
Brauð með smöri, kæfu og rjómaosti. (hér er ekki hægt að svindla!)
Pönnukökur með sykri og rjóma.
Drykkir: Vatn, mjólk og djús nema appelsínudjús og aðrir súrir.
Borðar ekki: Franskar, pasta með hvítri sósu, ananas, sveppi, papriku, sultu, lakkrís, súrt nammi og drekkur ekki gos.

2005-03-25

Múltíkúltí! Þvottatímanum var enn og aftur stolið frá okkur. Pálmi stóð fyrir utan þvottahúsið þegar ræninginn kom aftur á brotstað og spurði á sænsku hvurju þetta mætti sæta! Útlit ræningjans kom á óvart. Í þetta sinn var hann ekki feitur kvenmaður frá Arabaheimi heldur þvengmjór austur-Evrópubúi sem yppti öxlum og þóttist ekki skilja neina sænsku. Stakk uppá að hafa samskipti á þýsku sem Pálmi reyndi en bar lítinn árangur: "Dein zeit?" meira skildi Pálmi (sem valdi spænsku í MH sem þriðja mál) ekki.

Af einhverjum undarlegum ástæðum var okkur boðið til veislu á tælenskan veitingastað hér í bæ til að fagna heiðursdokoranafnbót einhvers Svía sem hefur aðstoðað þróunarlönd við að byggja upp rannsóknaraðstæður. Af ennþá undarlegri ástæðu gleymdum við hreinlega að mæta! Hugsa að litlar íslenskar orkusugur sem ég bý með hafi átt einhvern þátt í því.

Fór á fund í morgun með breskum og sænskum sem giftist tævanskri sl. föstudag. Framtíðarplön lögð um að ég skoði fleiri eldfjöll betur. Hlakka til!

Baldur er farinn að smakka graut og líkar vel. Hann er búinn að finna skriðstellinguna (ýtir rassinum aftur og stendur á fjórum) en er ekki farinn að nýta sér hana. Ýtir sér bara afturábak á hálu gólfi og snýr sér í hringi!

2005-03-23

Til hamingju med AMMAELID!!!

2005-03-22

Jon Logi segir: "Stina kanntu a skautum? En skidum?"
Skilst ad thetta se rett malfar!! Finnst thad samt skritid..
Hann kallar mig enntha Stinu eftir ad Valgerdur var herna.


Nu er vor i lofti og hitamaelirinn er farinn ad syna plustölur.
Sl. föstudag kom greinin okkar ut og Mattias gifti sig.
A eftir aetlum vid ad skoda hus.
I eftirmiddaginn aetlar Kent ad arita nyju plötuna sina/mina.
Naestu helgi fer Alfrun til mömmu sinnar og Helga Lara, Hulda og Gaui koma i heimsokn til min.

2005-03-20

Vorjafndægur og Pálmasunnudagur eða Stínusunnudagur eins og Jón Logi segir ;) Hann er sko mömmustrákur! Fórum á skauta, öll nema Baldur sem barðist um í kerrunni og Álfrún sem fór á maraþonkóræfingu. Hlustuðum og horfðum oft á Selmu taka nýja Júróvisjónlagið í dag. Fjölskyldan er sammála um að lagið sé afar vel heppnað þó að myndbandið hafi kannski ekki alveg verið að gera sig.. Það má að minnsta kosti setja útá draumaprinsinn og hvað er eiginlega málið með þessar hræðilegu krullur? Spíssdansinn er samt þó nokkuð kúl!

2005-03-18

Besta disputation sem eg hef verid a! Björn Bergman vardi med glaesibrag.. Va! Var ykt stressud i morgun fyrir hans hönd. Party i kvöld..!#&¤(/#&¤//#=¤?"#....

2005-03-16

Allt brjálað! Á meðan bloggar maður nottlega ekki neitt. Ástæðan: Hildur og Valgerður komu í heimsókn :) Æðislega gaman og um leið afar notalegt að fá að umgangast þær í þessa örfáu daga. Svo leggst maður í algert þunglyndi.. a.m.k. í einn dag! Ligg uppí rúmi hjá sofandi syni og fletti HM bæklingi. Lít öðru hvoru uppúr á gulu punkt-prósessa bókina sem liggur á kommóðunni. Kannski ég láti slag standa.. nehh ekki í dag!
Jón Logi kallar. Hann er í baði með Múmínálfunum (ekki úr kexi í þetta sinn!) sem hann raðar meðfram baðbrúninni. Þeir eiga það til að detta bakvið baðið og þá er kallað í mömmu. Hún kemur með herðatré og veiðir þá upp, afar snilldarlega. Þar datt Múmínpabbi! Heyrumst.

2005-03-10

Kvennadagurinn var í fyrradag. Sá engan blogga um hann. Hér í Svíþjóð borgar það sig ekki fyrir konur (sem vinna fyrir hið opinbera) að fara aftur að vinna eftir að þær eignast börn. Þær beinlínis tapa á því sem nemur 10 þús íslenskum krónum mánaðarlega (úr skýrslu sem birtist í DN fyrir ca mánuði). Þegar konur ganga með börn þá fá þær enga uppbót fyrir þann tíma sem þær missa úr vinnu. Margar konur eiga verulega bágt með sig fyrstu 3 mánuðina og allar konur ættu að hætta að vinna að minnsta kosti 2 vikum fyrir settan dag. Íslenskar reglur um fæðingarorlof eru meingallaðar. Sem dæmi þá hafa skólamæður (mömmur í skóla) sem ekki stunda fullt nám (hér ber Lín og tryggingastofnun ekki saman) skertan rétt til orlofs á meðan að eðlilegt þykir að feitir bankapabbar þurfi 80% af sínum feitu launum til að þeir nenni að hanga yfir börnunum sínum!

Við mæður sem stöndum í að mennta okkur eða höfum áhuga á starfsframa missum af lestinni í hálft til eitt ár fyrir hvert barn sem við eignumst. Auk þess stöndum við í því (langflestar konur sem ég þekki til amk) næstu 15 árin að fara með/sækja börn á leikskólann, skólann, tónlistarskólann, fara með þau til læknis og skólaviðtöl, vera heima þegar þau eru lasin og svo mætti lengi telja. Þetta leiðir til þess að vinnudagarnir okkar verða alltaf tæplega 8 tímar í allra besta falli en yfirleitt 6-7. Hvernig getum við náð sama árangri og drengirnir sem sitja við 20-50% lengur uppá hvern einasta dag? Og hverjum er þetta að kenna? Ekki tryggingastofnun og ekki Lín! Finnst okkur kannski alltílæ að hætta á undan mönnunum okkar því þeir fá miklu hærri laun en við? Og bíddu, af hverju ætli það sé nú aftur?

Fyrsta greinin mín í þessu doktorsnámi kemur út seint í þessum mánuði. Samstarfsfélagi minn fór og kynnti rannsóknir okkar þegar ég átti tvær vikur eftir af meðgöngunni. Í lok apríl er svo aðal jarðfræðiráðstefnan í Evrópu haldin í Vín og Matti ætlar líka þangað til að kynna það sem við höfum verið að gera. Ég væri nú alveg til í að fara og upplifa feedbackið. Fá spurningar og heyra gagnrýni en auk þess heyra hvað hinir sem eru að vinna með statistík eru að fást við þessa dagana. Ef ég færi þyrfti ég að taka Baldur (brjóstmylking) með og eiginlega líka barnapíu. En ég get ekki krafist þess er það? Eða varla spurt. Og þó. Er þetta ekki einmitt spurning um jafnrétti kynjanna? Þeir sem búa út á landi og fara til Rvk í nám fá sveitastyrk á grundvelli þess að allir skulu hafa jafnan rétt til náms. Ég er kona með barn á brjósti (fötluð..?) get ég ekki farið fram á það að þeir borgi fyrir mig það sem þarf á jafnréttisgrundvelli? Og svo fær nú deildin líka meiri pening fyrir mig á þeim forsendum að það vanti konur í efri stig menntakerfisins! Á ég ekki bara að láta vaða?

2005-03-04

Einstein leitaði að hinum eina sannleika. Einni jöfnu sem gilti um allt. Ég veit svo sem ekkert meira um það en hitt veit ég að Baldur er jafn fallegur núna og ég er ljót. Er að missa hárið, er náföl og ólöguleg sem aldrei fyrr.

2005-03-03

Þú kreistir ekki safa úr epli. En að búa til ljós úr hljóði?

2005-03-02

Frostmet slegið í nótt. -33 gráður í Uppsala.

2005-03-01

Jæja þá erum við komin heim úr Rómarferðinni! Ferðin heim tók 10 tíma, úr 10 stiga hita í 18 stiga frost. Þetta gekk svona bærilega. Róm er æðisleg borg og vika algert lágmark einungis til að skoða það helsta. Lúmskt álag að vera með öll þessi börn.. Spurði sjálfan mig oft að því hvað við hefðum eiginlega verið að spá.. 4gra ára sveimhuga, kvefað brjóstabarn og suðandi ungling. Dreymdi í nótt eltingaleik við Jón í Colosseum.

Fetuðum í fótspor Langdons (söguhetju Dan Browns í Englum og djöflum) og skoðuðum kirkjur og piözzur og gosbrunna og styttur sem koma við sögu í bókinni. Biðum í hinni frægu Sixtusarkapelluröð og börðum kraftalega vaxnar fígúrur Michelangelo augum. Pantheon, Colloseum, Forum Romanum, þar var allt í rúst! Fórum í dýragarðinn og læddumst yfir veiklulega brú sem hékk yfir krókódílasíki. Gengum eftir Via Appia og þræddum göng Sebastian katakombanna. Belgdum okkur út af ís, pasta og pizzum daglega ;) Keyptum glingur af götusölum og hnetur sem brögðuðst eins og kartöflur!



En nú er ævintýrið búið. Erum komin heim í pestarbælið og stofufangelsið í Gottsunda. Álfrún komin með 39 og Baldur neitar að anda í þessu frosti þ.a. ég er aftur fangi í minni eigin íbúð. Djí hvað ég er eitthvað hress...
Fer að ráðum ömmu Einars Áskels og læt mér leiðast svolítið áður en ég fer að hlakka til næsta ævintýris. Það verður í boði Hildar systur.