af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2005-01-27

Baldur Máni Pálmason er 4gra mánaða í dag!
Hann getur velt sér yfir á magann og aftur á bakið, finnst gaman að horfa á sjónvarpið, í baði og að láta skipta á sér. Mjúki bangsinn frá Ásu og Ara er uppáhalds leikfangið hans. Hann er 6,7 kg og 63 cm. Hann sefur alla jafna á nóttunni frá miðnætti til rúmlega 6. Hanakamburinn er að mestu farinn. Hann slefar mikið. Hefur ótrúlegt jafnaðargeð. ER góður og fallegur mömmustrákur :)

Við Pálmi erum stundum doldið flippuð.. Fórum með börnin í rómantíska ferð til Parísar í febrúar í fyrra, í sportlovinu. Febrúarfrí ársins verður tekið út í sjálfri Róm! Öll síðustustundartilboð svitna við hliðin'á Rómarferð ferðaskrifstofu Stínujóns þar sem Ryanair fer með okkur á staðinn og tilboðsrúm í Vatikancity bíða okkar. Fjölskyldan mun svo endasendast milli markverðustu staða sem þykja víst ekki síður heilla börn en fullorðna!

2005-01-25

Litli skelfir ýtti á e-a takka og bloggið strokaðist út. Kannski bara ágætt! Ég segi þá frá einhverju öðru. Versti dagur ársins er liðinn. Í dag er allt betra. Virovex frunsukremið er að virka, innan við vika þ.a. til ég fer til Gautaborgar á kellingadjamm og Jón Logi málaði fallegustu mynd sína til þessa í dag! Mótívið er brosandi trúður. Litaval abstrakt.

2005-01-24

ÉG sem hélt ég væri svo mannglögg! Haldið' ekki að kändisen Frida úr Farmen Afrika á tv4 hafi verið að fóstra drenginn minn á leikskólanum hans alveg þangað til í dag því nú byrjar hún að leika í nýrri reality seríu sem gerist á Indlandi. Þegar ég sótti JayLo í dag fór hann að tala um Fríðu prinsessu sem væri hætt og Morskan opnaði sig og sagði mér frá nýju Indlandsseríunni. Þær á leikskólanum vona að hún detti út í fyrstu umferð svo hún geti komið aftur og haldið áfram á leikskólanum í mars! Hún er svo dugleg hún Fríða...
(Fríða í miðjunni)

2005-01-23

ókey ókey.. ég skal blogga..

Árið gert upp
MúSík ársins: mugison og johnny cash jú og líka hail to the thief
Skrímsli ársins: Balli beauty
Ofurmamma 2004: Hildur Jóns
Ræningi ársins: Bush fyrir vopnað rán í Írak
Sveppur ársins: Slimskivling
Chic 2004: Geja
Misskilningur ársins: Point processes
Drykkur ársins: Pilsner og nýkreistur appelsínusafi
Bumba 2004: mín
Ferðalag ársins: Tjaldútilegan í Noregi
Pabbi ársins: minn
Besta myndin: Ekki Troja
Bestu sjónvarpsþættirnir: 24
Flottasta hönnunin: makkintostölvan hans Ara
Unglingur ársins: Alfy
íþrótt ársins: kubb
hjónakorn 2004: Ásdís og Bjarni
Vinir ársins: Valgerður og Jón Logi
íþróttamaður ársins: zlatan ibrahimovich
Lélegasti bíllinn: Citroen
Flottasta húsið: mömmu og pabba
Leyndó ársins: það er leyndó..
Kombakk 2004: Lovísa átti það í haust
áramótaheit 2004: Taka við að sjá um heimilisreikninga.
keypti möppu.. það gerðist nú aldrei neitt meira ehe

áramótaheit 2005: Sinna börnunum vel ;)