af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2004-12-19

51 kíló komin oní töskur! Spennan að ná hámarki.. nú er bara að reyna að festa blund í nokkrar klukkustundir. Serverinn er niðri eins og sést en tæknimenn lofa 80% uppitíma yfir hátíðirnar. Í fyrramálið þarf svo að drífa liðið og kílóin útí strætó, niðrá lestarstöð, oka tog til Arlanda, flyga til Köben og stressa í veg til Íslands með IcelandExpress... here we come
neh hvað er nú þetta! Pálmi setur Westlife á fóninn ..aint that a kick... Ekki bara stress, nei nei hér er gleðin við völd og tilhlökkunin að ná hámarki ;)

Megaknús og kossar yfir víra og snúrur til ykkar allra elsku lesendur!

HAPPY HOLIDAYS!

2004-12-14

LOXINS! Smá sigur náðst á þessu ári því grein nr. 3 (Earthquakes descaled, send í physical review letters) var EKKI hafnað :) "In my opinion the analysis presented by authors is well-founded..." yeah yeah yeah!!!
Stóru verkefni ársins hafa einna helst minnt á bakstur. Hræra í deigið og inní ofn og svo bííííða eftir niðurstöðu ;) Besta útkoman er án efa Baldur. Þarf nú ekki einu sinni að setja glassúr á hann... Aðeins eftir að dedúa við síðustu greinina. Setja krem og skreyta. Tvær kolféllu og fóru beint í kompóstinn.

2004-12-10

Nú liggur minnsta barnið í fanginu á stóru systur og ég sver það, hann malar!

2004-12-09

Grein nr. 2 líka hafnað þrátt fyrir þessi orð:"The matter is interesting for the journal and the approach is original"! Hinir yfirlesararnir bara alveg hundfúlir. Kannski ekki skrítið þegar maður gefur í skyn að þeir hafi verið að framleiða greinar með bullaðferðum og bulltúlkunum undanfarin ár... K. Jónsdóttir et al. ekki vinsæl þessa dagana!

2004-12-08

og þá tekur maður bara strætó með hinum nýbúunum.

Fyrir ykkur sem ekki enn hafið fjárfest í öllum jólagjöfunum þá auglýsir Järnia á baksíðu Dagens Nyheter í dag: Kniv och yxa i presentförpacking! Aðeins 279 SEK. Áður 425 SEK. Þetta er góður díll.

2004-12-04

..og haldiði ekki að rauða neyðarSTOPljósið í mælaborði Sítróensins hafi kviknað á leiðinni útúr bænum.. Jújú. Sáum aldrei húsið. Hikstuðum heim og lögðumst í vídeósukk. Hvílíkt þunglyndi mar..

Fór til Stokkhólms í fyrradag. Alveg stappað af fólki í jólagjafainnkaupum. Erfitt að komast með vagninn. Stórborgin er ágæt, svona útaf fyrir sig, en ég myndi ekki vilja búa í henni.
Fór í mömmuleikfimi í gær. Alveg ágætt, en ekki næstum jafn gott og í Vörtuhúsi Lindu (Baðhúsinu..). Held ég sé ennþá í nettu menningasjokki. Flestallt svo miklu betra á Íslandi! Buðum Gullu og Össa í mat. Áttum saman afar huggulegt kvöld. Borðuðum Bamba. Tókst loxins að steikja alveg mátulega. Ekki of þurrt, ekki of rautt!
Ætlum að kíkja á hús núna á eftir. Spurning hvort draumahúsið sé fundið?