af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2003-12-29

J O L

2003-12-27

Í dag erum við bara þrjú í kotinu. Álfrún flaug til Íslands í gær og við þustum á jólaball Íslendingafélagsins. Spiluðum saman hjónin fjögur jólalög í íslenskri jólamessu, gengum kringum jólatréð og fengum að lokum yndælis kaffi og kökur. Í morgun vorum við því hálftóm, höfðum lokið öllum verkefnum desember mánaðar og þar með ársins 2003. Lagðist ég í sófann, fékk mér kaffi og fór að lesa íslenskar bækur sem ég fékk í jólagjöf? Nehei.. þeir sem þekkja mig vita að ég bjó að sjálfsögðu til nýtt og spennandi fjölskylduverkefni sem við réðumst strax í að leysa. Sjá sjóinn. Fara í fjöruferð. Finna lyktina og hlusta á öldurnar. Sjá kannski skip. Finna flöskuskeyti?
Bílnum var startað um 11 leytið. Við keyrðum fyrst til Norrtälje. Ákaflega fallegur bær með mörgum æðislegum gömlum velviðhöldnum húsum. Bærinn liggur vissulega að sjó en þarna eins og í Stokkhólmi er rosalegur skerjagarður. Ég var því ekki alveg sátt og vildi lengra. Mig langaði til að komast í fjöru þar sem ég gæti horft á hafið og ystu sjónarrönd með því að hreyfa höfuðið í a.m.k. 100°. Við keyrðum því norður fyrir Norrtälje og leituðum að sveitavegi sem tæki okkur niðrí fjöru. Enginn slíkur vegur var merktur inná kortið en þrátt fyrir það fundum við veginn sem við leituðum að. Hann lá að óskaplega fínu sumarbústaðahverfi og fínustu bústaðirnir skiptu með sér eftirsóttri strandlengjunni. Það var tekið að dimma og við fikruðum okkur vonlítil eftir veginum sem lá samsíða strandlengjunni og gaf almúgafólki í leit að hafinu engan séns. Skyndilega beygði vegurinn í átt að sjónum. Pálmi lagði bílnum og við klæddum okkur í hlý föt. Mættum nokkrum fínum Svíum sem svöruðu ekki kveðjum frá kátum Íslendingum sem gátu ekki beðið eftir að hlaupa niðrí fjöru. Það dimmdi ört en hressandi hafgolan og hvítfyssandi öldurnar áttu hug okkar. Tvö skip í fjarska. Af einhverjum undarlegum ástæðum þótti mér gott að horfa á sjóndeildarhringinn. Standa á jökulsorfinni klöpp með Pálma og Jóni Loga hönd í hönd og horfa á stóra hafið. Og ekki spillti fyrir að í klöppinni var bleikur granítgangur ;-)

2003-12-24

GLEDILEG JOL!

Bestu kvedjur fra vetrarlandinu : ) Ykkar Stina, Palmi, Jon Logi og Alfrun

2003-12-22

Jaeja, nu er eg komin i jolaskap! Aðfaranótt fjórða í aðventu byrjaði að kyngja niður snjó og á því er ekkert lát. Svíar kalla þetta veður "snöstorm" en samkvæmt mínum orðaforða þá er þetta ekkert annað en jólasnjór! Friðsælir risastórir ískristallar sem falla ofurhægt til jarðar og tilla sér á hús og tré. Í stofuglugganum mínum mætast andstæður. Bleik amaryllis-blóm og þrjár blómstrandi orkideur í gluggakistunni og í bakgrunni hrímað glerið sem hleypir gegnum sig mjúkri birtu frá ljósastaurum og jólaljósum.
Í snjógallana! Drögum fram húfur og lúffur röltum svo með tvo sleða áleiðis uppí centrum, Jón Logi í öðrum sleðanum og í hinum drögum við jólatréð með okkur heim.

2003-12-16

Komin naestum vika og eg hef ekkert skrifad... Stundum er madur bara ekki i studi. Er pinu ofvirk thessa dagana. Er ad laera fyrir prof og med 100 adra hluti i smidum. A fimmtudaginn er "julbord" deildarinnar. Eg er skipulagsstjori, tharf ad kaupa inn og sja til ad thetta verdi hid besta party. 35 eru bunir ad skra sig, thar af 5 konur! For a fund deildarstjora sem tjadi mer ad liklega vaeri nog ad kaupa 60 bjordosir. 2 a mann. Ja, konur drekka ekki neitt, otharfi ad kaupa fyrir thaer... Helt ad hann vaeri ad grinast og for ad hlaegja, en hann var ekkert ad spauga.
Eg er buin ad gera nyja heimasidu fyrir deildina og hun a ad koma ut fyrir jol. Hun er i raudum og graum tonum, th.a. ef thid faid upp hvita og blaa sidu tha erud thid ad skoda gomlu siduna. Helviti mikil vinna a bakvid thennan vef. Er buin ad gera hann adgengilegan fyrir innanhussnotendur en ekki fengid nein serstok vidbrogd. Thetta er kannski bara thessi haskolaandi. Allir innilokadir a skrifstofum i sinum eigin bransa-heimi og vilja ekkert vita af umheiminum.
Erum med gest hja okkur nuna i ruma viku. Sigurlaug skjalftastelpa er i heimsokn. Aetla ad fa hana med mer i ad undirbua jolahladbordid.
A sunnudaginn syng eg i messu med kornum i Domkirkjunni. Vid Alfrun skiptumst a og syngjum adra hvora helgi. Hun song sidustu helgi a Luciutonleikum fyrir fullri kirkju. Yndislegir tonleikar!
A annan i jolum erum vid Palmi svo buin ad taka ad okkur ad spila i islenskri messu. Thurfum eitthvad ad aefa fyrir thad.
Ja, eins og thid heyrid er nog ad gera thessa dagana. Spurning hvort eg se alveg ofurdugleg ad edlisfari, eda hvort eg kunni bara alls ekki ad segja NEI..

2003-12-10

Allir komnir a lappir aftur! Langadi ad segja ykkur adeins af straknum minum honi Joni Loga. Hann er kalladur "Pusselmästaren" a leikskolanum thvi hann er svo flinkur ad pussla ;) Minnir mig stundum a Hildi systur. Thrjoskjur eins og naut sa stutti! Thegar hann bidur mig um ad syngja fyrir sig a kvoldin (bidur mig reyndar ekki bara a kvoldin..) tha kallar hann login svo snidugum nofnum. Hann spyr t.d. "Mamma viltu syngja Blessud Jolin?". Eftir sma stund tha kom thad.. "Ja, thu meinar Bradum koma!". Fleiri uppahaldslög eru :Unga astin min, Tunglsljosid og Viltu baka piparkökur?

2003-12-02

Influensan náði mér! T>39 og allt í volli... Mikið hrikalega er ég lasin ooooo