af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2003-09-30

Helgin var frekar roleg. Forum reyndar til Stokkholms a laugardaginn og spasserudum um a Drottningargotunni. Forum a aegilega vinsaelt kaffihus og thurftum ad bida lengi eftir matnum sem reyndist svo bidinnar virdi. Fundum skemmtilegar budir. M.a. Kinabud med allskyns leikfongum og doti. Eg og Alfrun fellum fyrir flugdrekum og vatnslitum. Endudum svo i stormarkadsfiling i Huddinge thar sem risa leikfangabudin ToysRus var heimsott. Eyddum longum tima i ad hlaupa um budina og bera augum thessa miklu dyrd! Allt til ;-) Alfrun keypti ser Harry Potter spil og Jon fekk bilabraut. Vid Palmi fengum ekki neitt i thetta sinn..

Um kvoldid komu Cedric og Daniel i heimsokn. Ad sjalfsogdu a hjolum eins og Uppsalabuum saemir thratt fyrir gifurlega rigningu. THurrkskapurinn var settur i gang og thurr handklaedi voru dregin fram. Svo hofst skemmtunin! Alfrun tok fram spilid og vid spiludum Harry Potter spilid i fyrsta sinn. Thad var alveg storskemmtilegt! Mikil spenna og vid breyttumst i spaejara i Hogwartsskola. Alfrun slo i gegn. Taladi ensku og saensku og islensku og utskyrdi spilid fyrir okkur Palma, Svisslendingnum og Hollendingnum sem hafa setid tvo saenskunamskeid, en eru nu samt oruggari i ensku. Gestirnir foru seint, enda huggulegt kvold med kertaljosum og raudvini.
Daginn eftir var svo Alfrun eitthvad slöpp og kom a daginn ad hun var med gubbupest. Gekk fljott yfir. Allir hressir i dag.

2003-09-24

Eftir vinnudaginn i gaer forum vid i sund. Alfrun fekk arskort i Gottsundabadet (Gottsundasundlaugin) og vid Palmi stefnum a ad verda okkur lika uti um slikt. Vid aetlum ad reyna ad vera dugleg i vetur ad fara i sund. Laugin tharna uppi centrum er alveg agaet. Frekar kold kannski fyrir leik, en mjög fin fyrir sundaefingar. Alfrun tok Erlu med ser og thaer leku ser medan vid Palmi skiptumst a ad synda og passa Jon. Jon er ordin ansi oruggur. Hoppar uti laugina og steypist a bolakaf. Er med armkuta og laetur sig fljota a bakinu og horfir afslappadur uppi loft. Thad er aedislegt ad sja thad!

I morgun saum vid hjartardyr i skoginum. Vid Palmi hjolum oftast i skolann og förum tha i gegnum Stadsskogen. Hjörturinn hljop thvert yfir hjolastiginn svona 50 m fyrir framan okkur. Thad vaer aedi :-) Fallegur, raudbrunn og stor, ei hyrndur.

2003-09-23

Haust med roki og rigningu, sol sem skin nanast larett innum glugga og thessari thungu sorglegu tilfinningu, endalokum sumarsins.

I gaer helt Niklas kvedjuparty eftir ad hafa varid licenciat-profid sitt med soma. Hann tok thad skirt fram ad born vaeru velkomin, th.a. vid tokum grislingana med. Thetta var aegilega kosy. Hann bad gesti vinsamlega um ad koma med vin og eitthvad ad narta i, en afthakkadi pent gjafir. Ur vard rosa veisla, fullt af folki, raedur og thvilikt. Mer finnst thetta fyrirkomulag rosa snidugt. Hef tekid eftir svithjodarvonum Islendingum sem hafa tekid thennan sid upp. Daemi: "Engar gjafir, en takid gjarnan med ykkur kampavinsflösku!" Bornunum fannst thetta alveg agaett. Vid forum snemma, enda skoli daginn eftir og thau vön ad fara milli 8 og 9 i bolid.

2003-09-21

Við fórum í bíó í gær! Vá... jú vá því að þetta var allra fyrsta bíóferðin hans Jóns Loga! Við fórum öll sömul, heila familien ;) Myndin sem varð fyrir valinu "Nasses stora film" sem fjallar um bleika grísin, vin Bangsímons. Það var rosa mikið vesen á okkur. Við Álfrún með fulla pokar úr HM, ég með nótur og plaköt (Brahms sko!) og svo bættust við poppkassar og gosdrykkir og allskyns gúmmilaði. Við hjónin vorum sammála um að þar sem við förum svo sjaldan í bíó þá yrðum við að gera alvöru úr þessu og dekra almennilega við börnin jú og okkur sjálf.. Jón Logi stakk að sjálfsögðu af, fram hjá dyravörðum og inn á gang þaðan sem allir bíósalirnir liggja. Ég panikeraði þegar ég sá Jón hlaupa þarna inn og Pálma snúa við! Álfrúnu tókst að draga pabba sinn, manninn með aðgöngumiðana, aftur að nammisölunni þar sem Sprite-ið bragðaðist ekki nógu vel og ég stóð ein mitt á milli Moskvu og Washington og var u.þ.b. að tapa mér, með fullt fangið af poppi og drasli og já.. þið sjáið þetta kannski fyrir ykkur!
En allir komu þeir aftur og þegar hin fjögur fræknu höfðu fengið sér sæti inní myrkum bíósalnum breiddist bros yfir liðið og sá allra yngsti skríkti af gleði! Hann hló hátt og oft. Miklu oftar en allir aðrir... Aðstandendur hátíðarinnar voru að vonum ánægðir og fyrirhugað er að bíóferð verði endurtekin, einhvern tíma aftur... Kannski á næsta ári?

2003-09-19

I morgun vakti Jon Logi mig. Palmi og Alfrun voru thegar komin inni eldhus ad borda morgunmat og Jon Logi var sendur til ad vekja mig. "Thad er kominn grautur mamma" en eg sneri mer bara a hina hlidina og sökkti mer dypra ofan i koddann. Tha settist Jon vid hlidina a mer og song. Hann song Sofdu unga astin min! Svo blitt og rolega. Fraseradi vel og teygdi ur sidustu tonunum. Augun a mer glenntust upp og eg trudi varla minum eigin eyrum. Thetta er i fyrsta sinn sem eg heyri hann syngja heilt lag svona "solo". Eg er djupt snortin og hlakka bara til ad heyra meira. Eg held ad thau systkinin seu ad thessu leiti lik. Thau eru ekkert ad hafa sig i frammi fyrr en thau eru ordin orugg. Eg veit ad Alfrun er buin ad laera alveg heilan helling i saensku, en hun mun ekkert opna munninn fyrir framan okkur Palma fyrr en hun er ordin alveg 150%.

2003-09-18

Viggo og Jara eignudust strak i gaer! Hann kom fyrir aaetladan dag, alveg 2mur manudum fyrr. Litill og heilbrigdur og ollum heilsast vel. Eg taladi vid Viggo i gaer, var svo frek ad hringja i Gunndoru og fekk ad tala vid splunkunybakadan pabba! Viggo sagdi bara ad hann vaeri litill og Viggo-legur :-)

Eg for a adra Brahms aefinguna i gaerkveldi. Alveg magnad stykki! Margir nyir byrjadir i kornum, allir aegilega duglegir ad lesa notur og svo er stjornandinn svo skipulagdur ad ein aefing er alveg otrulega arangursrik. A laugardaginn verdur aukaaefing. Fra 9:30 til 16... Alveg svakalega long! Eg er nu ekkert alltof hress med thad. Ny komin heim finnst mer. Langar ad vera med fjolskyldunni minni og gera eitthvad skemmtilegt. Alfrunu langar i HM og kaupa eitthvad fyrir afmaelispeningana. Jon Loga langar til Stokkholms i lestarferd! Mig langar bara baedi :) Eg er ekki alveg buin ad atta mig a mordinu a Onnu Lindt. Finnst thad alltof oraunverulegt enntha. A madur kannski ekkert ad vera ad flaekjast til Stokkholms? Undarlegt. Vid Palmi hofum lika lesid i frettunum ad thad er ymislegt skritid sem gerist her i Uppsolum, en madur verdur einskis var. Mer finnst allt svo fridsaelt her. Afslappad og notalegt.

2003-09-17

Eg hef slaem ahrif a bornin. Eg hef innleitt nytt "trend" sem Palmi er alls ekki anaegdur med... Eg er bornunum afar leleg fyrirmynd a morgnana! Mer finns mjog vont ad fara a faetur. Solarhringurinn minn ordinn islenskur og eg a i erfidleikum med ad breyta thvi. A manudagsmorguninn komst eg bara alls ekki i vinnuna fyrir hadegi. Eg bar thvi vid ad eg vaeri med halsbolgu, en thad var hraedilega leleg afsokun! I gaermorgun for eg sidust a faetur. La bara a koddanum og sagdist aetla ad kynnast honum betur.. Einhvurn veginn tokst Palma samt ad draga mig ut ur husi, en fekk mig alls ekki til ad hjola i skolann, heldur fekk eg ad lulla afram i straeto og taka morgunteygjuna og geispid a skrifstofunni minni. I morgun lau svo allir nema Palmi i sinu fleti og eg heyrdi Alfrunu apa eftir mer ad hun thyrfti ad kynnast koddanum sinum betur... Thetta endadi i eltingaleik og koddaslag med oskrum og latum og Alfrun rett hafdi thad ut a stoppustod i taeka tid. Restin var ekki maett til vinnu fyrr en half tiu!
Greyid Palmi, hann er afram eini fullordni abyrgdaradili heimilisins og er kominn med thridja othekka krakkann...

2003-09-15

haeho!
Gud hvad thad er ordid langt sidan seinast.. jesus! Er a lifi, er i Svithjod, Island var aedi ja og Island ER aedi :) Sumarskolinn var rosa skemmtilegur. Fullt af mergjudu folki, ungum og oldnum, nordum og toffurum, stelpum og strakum! What can i say.. rosa mikil keyrsla i 8 daga, en algerlega thess virdi. Eg fekk fullt af hugmyndum, eignadist vini og fekk goda innsyn inni Geo-bransann i dag, hvada vandamal vid erum ad glima vid og hvernig er folk ad leysa thau! Hvad er vinsaelast, hvad er ovinsaelast, hverjir eru vinsaelastir, hverjir ovinsaelastir.. jamm. Gott fyrir nygraeding ad lenda i svona veislu og fa ad finna lyktina af thessu ollu. Mer fannst hun god! Hopurinn var svo samstilltur, ekkert vesen. Forum i 3 vettvangsferdir, Sudurlandsundirlendid, eystra-gosbeltid (; Landmannalaugar og Eldgja) og ad lokum Reykjanesskaginn. Madur var nattulega i essinu sinu, alltaf ad utskyra og guid-a. Eg er hreykin af landinu minu :-)

Haustid er ad koma ser fyrir i Uppsolum. Enn er heitt i lofti, 16 stig eda svo. Fengum okkur slatur i gaerkveldi. Namm hvad thad var gott! Bornin atu a sig gat ;-) Palmi ofurpabbinn virdist hafa gengid vel i thessar 2 vikur sem eg var i burtu. Allir mjog hressir og ibudin tandurhrein! Jaeja, aetla ad fara ad kikja a skjalfta og hlusta a tonlist! Keypti alveg glas a Islandi, 15 stykki eda svo... Thad er alveg klikkud utsala i Skifunni!
ykkar Stina