Bestu lesendur! Sit í "stuga" í GPRS sambandi við umheiminn með þessa fínu ferðatölvu fyrir framan mig og verð að deila með ykkur smá Svíþjóðar upplifun! Í þessum litla rauða kofa eru með mér þrír yndislegir einstaklingar, hver með sínu sniðinu en allir ægilega ánægðir með lífið og tilveruna og hvort annað! Sumar í Svíþjóð er alveg dásamlegt og það að geta verið í vinnu við að ferðast og leita að skjálftastöðvum lengst inní dimmum, hljóðum skógum með alla fjölskylduna er hreint ekki svo slæmt. Sérstaklega ekki þegar maður finnur bláberjabreiður og hindberjafjöll og dularfull spor eftir ókunn dýr...
Við erum í Sollefteå rétt sunnan við Reykjavík (ef við gerum smávegis hliðrun) og ætlum norðar og norðar og norðar, allt norður að heimskautsbaug. Stöðvarnar hafa hreinlega hrokkið í gang þegar hin fjögur fræknu mæta á svæðið og við erum galvösk í verkefni næstu daga. Ég held ég geti ekki hugsað mér skemmtilegri vinnu eða bíddu.... nei, ekki. Þetta er skemmtilegasta vinnuferð sem ég hef farið í!
Ykkar hamingjusama Stína
Við verðum örugglega búin að kaupa okkur svona spil áður en líður á löngu...
