af sporddrekum og ödrum furduskepnum í Svíthjód

2003-05-30

Hae! Er byrjud ad gera fyrirlesturinn minn i Inversion. Hann fjallar um multievent locations. Eg er ekkert sma anaegd, fann thetta fina forrit i Linux, K-presenter sem er i svona powerpoint stil, snilldin er hinsvegar su ad eg get sett inn Kformula sem object inn a glaerurnar minar og a afar einfaldan hatt skrifad allskyns fylki og heildi og gud veit hvad! Svo laetur madur thetta ad sjalfsogdu slide-a inn ur ollum attum og bakgrunnurinn verdur nu lika ad vera flottur! Eg veit um nokkra lesendur sem eru Linux-nördar. Thid hin verdid ad afsaka..

I gaerkveldi hjoludum vid Sigurlaug til Cedrics eda Sigtryggs eins og vid köllum hann. Hann var buinn ad bjoda okkur i grillparty. Thegar vid maettum a stadinn tha sast hann hvergi en i stadinn tok a moti okkur fjoldinn allur af syngjandi og dansandi folki sem vid konnudumst ekkert vid. THetta var mjog frikad, thvi vid erum ad tala um alveg HELLING af folki og Sigtryggur hefur bara buid her i manud.. Vid fundum hann ad lokum bakvid hus vid grillid. Sambylingur hans hafdi tha bodid ollum sinum vinum lika..
Litli brodir Sigtryggs er a landinu og vid thurftum audvitad ad fa ad sja hann. Brodirinn heitir David og virdist vera "othekki" brodirinn. Var med buxurnar a haelunum og reykti uti eitt, nafolur og nett pönkaralegur. Thetta var hid skemmtilegasta kvold. A daginn kom ad their einu sem komust i grillparty Sigtryggs vorum vid Sigurlaug og Johiris, bara stelpurnar! Eftir matinn forum vid heim til Johiris a "dansnamskeid"! Jamm vid forum yfir helstu spor i Marenge og Salsa, rosa gaman! Thetta tok nokkud a.. alveg komin ur dansthjalfun.

Palmi og Jon Logi koma heim i kvold. Hringdi i morgun og their voru i godum gir. Eldingu hafdi slegid nidur i nagrenninu, öll öryggi farin og nu er bara ad bida og sja hvort taekin seu i lagi.. Jamm Palmi verdur skikkadur til ad fara yfir Salsa sporin med mer i kvold!

2003-05-28

Hallo öll sömul!
er i stresskastinu ad gera 100 hluti i einu i thessum blessada kursi.. Aegilega erfitt oooo eg a svo bagt! Er eitthvad svo tuskuleg.. vakna seint og fer seint ad sofa.. Vedrid er nu alveg med eindaemum! Hjoladi i morgun i stuttbuxum og stuttRemabol. Og nu aetla eg ut ad borda hadegismatinn med elsku Palma sem eldadi svo fint snitsel i gaerkveldi handa theim fedgum (eg var audvitad langt fram a kvold her i skolanum..)!

Gerdi sma prakkarastrik i gaer.. Vid fjolskydan förum til Islands um midjan juni og eg neitadi ad versla meir vid Flugleidir sem aetludu ad rukka mig alveg extra fyrir ad vera 2mur dogum fram yfir manud a klakanum. Eg skil ekki thennan bransa! Thad eru einhverjir halfvitar sem bua til thessar reglur hja theim.. Allavegana var eg buin ad panta flug i gegnum Iceland Express sem flygur fra Köben. Vandamalid er svo ad koma okkur thangad.. sitja i 7 tima i lest med einn tveggja og halfs.. ehehe hann hefur reyndar gaman af lestum en...
Svo kom thetta fina tilbod fra SAS i tolvuposti i gaer! Flug fra Arlanda til Malmö fyrir 3000kall islenskar! Reyndar a manninn, en eg stodst ekki freistinguna og setti okkur i einu flugvelina sem var laus thessa helgi og pantadi i leidinni fyrir okkur hotel i Malmö i tvaer naetur ..prakkari! Thetta fina tilbod gildir reyndar ekki i juli, th.a. vid getum ekki nytt okkur thad thegar vid komum aftur 17. juli til Sverige. Tha hinsvegar var plass fyrir okkur i naeturlest og med henni forum vid eftir heilan dag i Tivoli i Kaupmannahöfn ;-) Thad held eg hun Alfrun min verdi hrifin...

Myndir af Joni Loga og ein af Geju..(teknar 22. maí)

Myndir fra Cedrics-grillparty og fra Joni og Palma i Flymyra

EUROVISON-Party!!!

2003-05-25

Eurovision partyid var bara alveg agaett, thokkalegt! Su gamla nidri gat ekkert sofid, reyndi vid krossgatur fram a nott.. Thessi hus herna i Svithjod thetta eru nu meiri pappakassarnir! Er i sparifötum i Geocentrum thvi okkur hefur verid bodid i enn eitt partyid.. Ja thad er nu heldur ad lifna yfir felagslifinu her ;-) Kaerasta Ara er fertug i dag. Litur reyndar ekki ut fyrir ad vera deginum eldri en svona ..33gja! Ja mer finnst frekar skondid ad vera ad fara i fertugsafmaeli hja kaerustu vinar mins en thetta gerist vist.. vid eldumst.

2003-05-24

Gledilega EUROVISION!!!!!
jamm i kvold verdur sko party! Eurovision-party med öllu tilheyrandi traditionum... Á von á fjölda manns og er búin að þrífa frá klukkan 9 í morgun. Það var sannarlega þörf á því hehe.. Er búin að sitja hér fyrir framan skjáin og æfa ÆFA og æfa íslenska lagið með Pálma sem aldeilis að koma útúr skápnum sem partý-spilari.. LoXins!!! Ég vissi að hann væri þarna einhversstaðar. Ég er ekkert smá ánægð með íslenska lagið og spái því sigri! Vona bara að Svavar standi sig og setji aftur á hana hliðartagl með blómi! Hún var ekki alveg nógu smart með stóru hringina í eyrunum og ofur slétt hár.. Svavar með sléttujárnið sko.. nei, stúlkan þarf að vera með tagl! Var reyndar alveg í kastinu þegar þetta lag vann botnleðju á sínum tíma. Botnleðja hefði nú alveg fengið mitt atkvæði! Nafnið Euro-Visa, algjör snilld! Mér fannst Birgittu-lag lika minna mig svo mikið á Selen-Dion lagið úr Titanic "... where ever you are..." en nú er ég alveg búin að taka lagið í sátt og á eftir að syngja hástöfum með í kvöld!

2003-05-23

Erik Sturkell maetti galvaskur a svaedid og var ad enda vid ad halda fyrirlestur um Kötlu. Thetta var mjog skemmtilegt fyrir mig.. loksins eitthvad sem eg botnadi eitthvad i hahaa.. en svo.. breyttist feginleikinn i otta, thvi audvitad var aetlast til thess ad eg kaemi tha med einhverjar ofur gafulegar spurningar.. Sat sem betur fer a fremsta bekk, tha.a. eg gat utilokad betur adra i kringum mig. Titradi og var med sting i maganum allan fyrirlesturinn. Spurdi svo .. i halfum hljodum.. og eg held bara ad spurningin hafi alveg meikad sens.. hvort ad svarid hafi gert thad lika veit eg ekki... tharf adeins ad aefa mig i thessu. Eg er svo mikil mus!
Fekk teip fra honum med gognum fra 4 stodvum sem voru uppa jöklinum nu i mars og april! Verdur spennandi ad kikja a thetta stoff. En fyrst er thad inversion kursinn.. aeaeae

2003-05-22

Sumt vill maður bara ekki læra! Ákvað að lesa heima í dag. Kvaddi Gerði systur í hádeginu og fór strax heim að lesa. Lesa heima! Hvenær hefuru getað það Stína mín? Sumt nær aldrei í gegn... Bauð öllum í Eurovision-party.. Svíar kalla þetta Schlager-festivalen. Ég er búin að biðja liðið um að mæta í búningum.. nú er bara að bíða og sjá..

Til hamingju með afmælið Gummi!

2003-05-21

Jaeja.. Forum i disputation-party i gaerkveldi. Gerdur var heima med Joni Loga. Fyrsta skipti i mjog langan tima sem vid Palmi förum saman ut! Fengum rosa godan mat og skemmtum okkur konunglega ;-) Gleymdum thvi midur myndavel sem var midur thvi thad voru allir svo sparilegir..

Sidasti dagurinn hennar Gerdar i dag. Hun er buin ad hjalpa okkur med Jon Loga og svo er bara svo aedislega skemmtilegt ad hafa hana.. Godur gestur! Palmi gerir latlaust grin af okkur Hansen systrum thvi vid erum svo miklar ruslakellingar.. Skiljum allt eftir utum allt og vodum ur einu i annad.. Jamm, thannig erum vid! Paelingin i dag var ad fara saman i baeinn adeins. Mig langar til ad gefa henni eitthvad fallegt. Svo var paelingin ad fara ad sigla a kajökum. Neihh heyrdu nu mig! Allt i einu siglir gratt sky yfir svaedid og dempir yfir okkur rigningu og hagli! Nei... Veit thvi midur ekki hvort thad verdur af siglingu i dag..aeae

A taelenskum degi i Stokkholmi keyptum vid okkur sitronugras, galangalrót og koriander. Nu er bara ad henda i eina Tom Kha supu i kvold og heilla Gerdi med thessu aedislega godgaeti sem taelenskur matur er!

2003-05-20

Dreymdi svo skritinn draum i nott... Ad eg vaeri i Kaliforniu og vaeri ad byrja i Caltech med Volu, sem hefdi manad mig ad saekja um.. Var aegilega montin og anaegd med mig ad vera kominn i thennan fina skola. Svo var pabbi ad keyra okkur Volu i voda fint kaffibod hja jardedlisfraedideildinni. Svaka ameriskur kaggi... I kaffibodinu stod svo Vala alltieinu upp, greip fidlu og for ad spila "Sofdu unga astin min" med rosalegu vibratoi, en doldid falskt.. Fina folkid stod svo upp og klappadi fyrir thessari hugudu vinkonu minni sem endadi senuna a thvi ad retta mer fidluna med ordunum: "Nu thu!" Eg tok hikandi vid fidlunni en sat sem fastast. Eg thordi ekki ad spila.. Eg vissi heldur ekki hvad eg aetti ad spila. Eg reyndi og reyndi en bara hreinlega datt ekkert snidugt i hug.. Eg gugnadi! Kaffibodid var senn a enda og eg hafdi ekkert spilad. Alltaf sami ludinn...

Eg veit ekki alveg hvort eg eigi ad leggja mjog djupa merkingu i thennan undarlega draum. Hvad finnst ykkur?

2003-05-19

Kaera dagbok! Eg vil byrja a thvi ad thakka ykkur kaeru lesendur fyrir godar undirtektir :-) Velferd Jons Loga er mörgum mjög hjartfolgin og eg verd ad byrja a thvi ad sefa ykkur sem sitjid heima og erud med hjartad i buxunum vegna "fästinga"-bitsins sem Jon Logi fekk a dogunum. Bakteriusmit i fästingabitum eru ekki mjog algeng og ef skordyrid uppgötvast fljott minnkar haettan storkostlega. Thar sem blodsugan hafdi ekki verid lengi ad.. liklega ekki lengur en 2 klst. (talad er um ad gott se ad uppgotva hana innan 48 klst.) tha eru likurnar a thvi ad Jon Logi se syktur mjog litlar. Vardandi taugasjukdominn sem afar sjaldan smitast med thessum haetti, tha hefur su veira engin ahrif a born! Mamma hans Ara byr i Västervik og faer ca. 100 fästingabit a hverju sumri. Hun hefur aldrei fengid bakteriusykingu ne nokkud annad vegna thessa. Eg hef vonandi komid meiningunni til skila...

Helgin var alveg frabaer! Gerdur i geggjudu studi og nu er Jon farinn ad tala a innsoginu "jhhhhaú"! Forum til Stokkhólms, drukkum kampavin i Humlegardinum, skodudum fraegan kirkjugard, forum a taelenskan basar, bordudum godan mat medan saenskar skvisur gengu hja a catwalkinu... I gaer hringdi Ari i okkur fyrir hadegi og vid Gerdur og Jon Logi hjoludum og hittum tha Frey i Kungsängen og skodudum hinar sjaldgaefu Kungsängslilju sem nu er i bloma. Thessi liljutegund finnst einungis a bökkum Volgu i Russlandi og i Kungsängen i Uppsölum thar sem hun vex innan girdingar og er fridud. Get vonandi synt ykkur myndir sidar. Lagum i solbadi yfir midjan daginn..sumir brunnu.. ekki Jon Logi samt.. eg passa hann, engar ahyggjur! I lok dags keyrdum vid uppi sveit og skodudum m.a. Viksslott, höll fra arinu 1400, eina af elstu höllum Svithjodar. Solarlag nidur vid Mälaren. Eg er ekki fra thvi ad Gerdur hafi verid nokkud heillud.. Adal malid er audvitad ad heilla Gerdi sem mest svo hun komi fljott aftur og dragi jafnvel fleiri med ser.. (ATH! Thad er haegt ad smella a tengilinn "Shout out" her fyrir aftan og skrifa athugasemdir..)

2003-05-16

..thad er svo frabaert hvad thid erud godar vinkonur! Jamm thad er alveg satt ;-) Thessar systur minar eru ekkert venjulegar! Veit ekki hvar eg vaeri an theirra.. liklega bara einhver ruslarakki...

Palmi a ammaeli a morgun og tha förum við til Stokkhólms (úps gleymdi í smá stund að ég er með íslenskt lyklaborð...). Í kvöld héldum við samt smá forpartý. Sigurlaug og Sigtryggur (Cedric) komu í mat og ég og Gerður tókum egó-kastið og spiluðum allar plötur sem við eigum með sjálfum okkur.. eða svona næstum allar hahaha Nett flipp.. Gerður tók líka gítarinn undir hönd og spilaði nokkrar vísur. Sigtryggur samdi á staðnum þó nokkra slagara og Sigurlaug jamm hún er sko farin að drekka kellingin! Alls ekki ótæpilega, en ég greini töluverðan mun á drykkjuvenjum hennar frá því hún kom hingað óspillt (#$/(#$/)#) í mars. Já þetta var bara þó nokkuð gaman. Afslappað.. Borðuðum rétt frá Gautaborg, úr kokkabókum Helgu Láru -> fusion.. Ægilega gott, læt uppskriftina fylgja með:
* kússkúss með indverskum kryddjurtum
* ferskt spínat
* 1 krukka fetaostur í olíukryddlegi
* kjúklingabringur
* satay-sósa
Kjúklingurinn er skortinn í strimla, marineraður í satay sósunni og brúnaður í henni við vægan hita á pönnu. Allt sett í skál, í botninn fer kússkúss, næst kemur spínat og yfir þetta fer fetaosturinn (má blanda inní spínatið). Kjúklingurinn í sataysósunni kemur svo efst í skálina eða öllu heldur mótið.
Auka sallat er svo æskilegt og rauðvín er einkar gott með þessu. Mæli með Navarra-víni frá Spáni...
Hlakka til að vakna með afmælisgæjanum á morgun.. Í Stokkhólmi er haldinn Tælenskur dagur við sendiráðið þeirra. Er að hugsa um að draga liðið þangað. Við erum með bílaleigubíl á leigu alla helgina, svo ekki láta ykkur bregða þó ég láti ekki heyra í mér fyrr en eftir helgina...

2003-05-15

Kaera dagbok! Sorry hvad thad er langt sidan sidast... Gleymdi meirad segja ad senda afmaeliskvedjur uta netid thann 12. sidastlidinn til minnar elskulegu Soffiu! Their eru margir felagarnir sem fylla ar i thessum manudi. Vala atti afmaeli 6. mai, Sigurlaug 2. mai og a laugardaginn fyllir Palmi enn eitt arid (thetta er sko saenska.. ad fylla ar.. en hljomar skemmtilega a islensku lika!) og svo er thad Gummi 22. mai - Til hamingju!

Er komin i lestrargir. Loka mig inni Puhs hörna og er komin med lestraplan. Hefur gengid vel i morgun ;-) Palmi er ad vesenast i biludum modemum og their sem fa virkilega ad njota vedurblidunnar eru Jon Logi og Gerdur systir! Hun kom til okkar i gaermorgun og aetlar ad vera her i viku. EG er ekkert sma anaegd med ad hafa hana her! Alveg toppurinn :-) Hun aetladi ad rolta med Jon Loga nidrad vatninu og taka svo straeto hingad i hadeginu. Hugsa ad vid splaesum i luxus-hadegismat a Ekokaffi, uppahalds kaffihusinu okkar P! Ja uti er sol og blida.. eg ofunda thau gudmaedginin...

I gaer thegar vid Gerdur vorum nybuin ad saekja Jon Loga a leikskolann kom eg auga aeitthvad litid svart i hari Jons. Thessi litla kululaga dill reyndist vera fästing, th.e. blodsuga sem getur borid sem ser allsyns haettulegar veikir og sykingar.. uff.. Eg var mjog skelkud. Palmi er nybuinn ad hraeda mig med thvi ad lesa yfir mer hvad thetta eru hraedilega pöddur .. keypti expressen med mikilli umfjollun um sugurnar fyrir nokkrum vikum. Ef thad hefdi ekki verid fyrir hann Palma hefdi eg aldrei kveikt a perunni.. Thad var svo Gerdi ad thakka ad vid snerum vid aftur a leikskolann og syndum verkfallsvordunum osköpin. Ein theirra drog suguna burt med noglunum og sagdi mer ad muna dagsetninguna thvi ef hann hefur fengid sykingu kemur hun i ljos eftir 2 vikur. Jon fann ekkert fyrir thessu, ekki einu sinni thegar hörkulega fostran kippti sugunni undan. Nu er bara ad vona thad besta.

2003-05-12

er eitthvad pinu stressud... Kursinn heldur afram a fullu trukki, thratt fyrir fjarveru mina i sidustu viku og helgarsukk.. skritid! Nu er bara ad kila a thad og lesa uti eitt... Palmi fer lika kannski i feltid bradum og tha er ekkert elsku mamma.. Verkfall ofaglaerdra fostra, th.a. vid erum i veseni med possun fyrir Jon Loga.
Gerdur systir hringdi i gaer og er ad spa i ad skella ser hingad ut til okkar! Mer list ekkert sma vel a thad! Kemur vonandi bara i vikunni ;-) Hentar reyndar alveg serlega vel, th.e. ef hun nennir ad lita eftir Joni Loga eitthvad.. ja og eg tala nu ekki um ad vera mer til halds og trausts ef Palmi skildi thurfa ad fara i feltid. Pirrandi ad vera i thessum kurs nuna, thad er svo margt skemmtilegt ad gerast.. allskonar tonleikar i bodi og Stokkholmur er allur ad lifna vid. Svo er haegt ad fara ut ad roa og svo er vorball naestu helgi.. jamm thad er haett vid ad madur missi af einhverju...

2003-05-10

aaaaaaaaaa.. "Hvernig geispar þú?" Erum eitthvað hálf tuskulegt gengi á Altfiðluveginum. Borðuðum tælenskt hér í gærkveldi með Óla Rögg, Ann og Ara og uðrum verulega södd. Ansi margar rauðvínsflöskur voru opnaðar frá hinum ýmsu heimshornum. Þessi þrúgan og hin.. Súkkulaðikaka og kaffi setti punktinn yfir i-ið fyrir suma. En ekki alla! Manowar, Cranes, Manowar, Portishead, Manowar... Jú það var ekki um að villast. Óli var mættur.
Í dag höfum við hvílt okkur. Inni og úti. Já veðrið er alveg dæmalaust fínt. Og svo er aftur partý í kvöld! Grillpartý hjá Sigrúnu og Snævari. Kosningapartý... það er varla að maður... þið vitið...

2003-05-09

Í gærkveldi var sýnd "dokumentär" (kæru lesendur, vinsamlega segið mér íslenska nafnið á þessu..) um arabíska grunnskóla í Svíþjóð. Tekin voru viðtöl við skólastjóra þessarra skóla oftast með falinni myndavél inná skrifstofum viðkomandi og allt var þetta klippt sundur og saman með það eitt fyrir leiðarljósi að draga upp sem dekksta mynd af því sem fram fer í þessum skólum og ýta ennfrekar undir fordóma í garð Araba sem sænskt þjóðfélag hefur því miður veikst af. Stundum voru spurningarnar spurðar á staðnum af kvikmyndagerðarmanni í dulargervi (þóttist vera arabískt foreldri) en oftar en ekki var spurningum splæst við fyrir framan og svörin greinilega klippt inní..
Dokumentär er nýjasta æðið í Svíþjóð. Þau fjalla um allt milli himins og jarðar, eiga helst að vera sjokkerandi og best er ef þau eru líka ógeðsleg. Ég skil ekki alveg hvað er í gangi hérna.. litli pönkarinn ég!

Ég er að lesa inversion theory. Var alvarlega að íhuga að fara í skólann í morgun þegar ég heyrði rödd móður minnar í hausnum á mér: "Farðu nú vel með þig!". Er orðin hitalaus en hausinn er samt eitthvað pínu skrítinn. Ákvað að taka því rólega heima. Sit við gamla borðið sem afi smíðaði, horfi út yfir Musikveginn og spöglera í þessum samþjappaða texta hans Menke, Bryndísar félaga. Bandarísk bók í mjög breskum stíl. Vá hvað allt er grænt! Allt í einu sé ég það. Vorið. Það er komið. Það liggur við að maður geti séð skærgræn laufin springa út. Leggst í hengirúmið með teppi og anda að mér súrefni í smá stund. Það er 10 stiga hiti úti að minnsta kosti. Ég er öll að koma til. Verð orðin ofurhress í kvöld þegar Óli Rögg kemur.

2003-05-08

hæ, er ennþá slöpp, en eitthvað aðeins hressari samt finnst mér. Er alveg örugglega ekki með neina hræðilega lungnabólgu, engar áhyggjur. Mér fannst alveg rosalegt að fylgjast með því hvernig íslenskir fjölmiðlar fengu alla þjóðina til að skíta á sig af hræðslu útaf þessum lungnabólgufaraldri. Það voru allir með þetta á heilanum þarna heima. Hér í Svíþjóð var þetta frétt númer 17 eða einhversstaðar þar um bil og sænski læknirinn sem fór í sjónvarpsviðtal sagði að ástandið í heiminum væri þannig að það væru miklu fleiri að deyja úr sjúkdómum sem nú þegar eru til lyf við, þ.a. léleg útbreiðsla lyfja í heiminum væri miklu alvarlegra vandamál. Já þannig var þetta afgreitt hér.
Það hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með því hvernig sænskir fjölmiðlar eru frábrugnir þeim íslensku. Þeir t.d. hika ekki við að taka afstöðu í pólitík og þá meina ég afstöðu! Nei hættu nú alveg Stína mín... ertu nú ekki komin útá hálan ís? Pólitík?

Jón Logi vaknaði vælandi í morgun. Honum dróst að draga mig á lappir og fá rúgbrauð með kæfu og mjólk að drekka, þrátt fyrir að ég hafi boðið honum eitthvað allt annað. Fór fjótlega að suða um eitthvað annað; Nei, ekki núna, nú borðum við morgunmat; mikill grátur.... Kastað inní herbergi, svona hagar maður sér ekki! Svo er hann kominn fram, brýst um þegar verið er að skipta á honum og sparkar að lokum í andlitið á pabba sínum.. nú eru duddurnar teknar af honum með orðunum, það má aldrei sparka í andlit! Gæinn er nú heldur engin smásmíð lengur. Kempan hann Jón Logi er að verða 15 kg og er mjög kraftalega vaxinn. Hann vældi um að fá duddu útí eitt og hvarf loks útum dyrnar með pabba sínum á leið í leikskólann. Úff....
Ég pantaði mér bók um daginn á Amazon sem ég sá fjallað um á netinu. Hún er agalega amerísk og fjallar um listina að tala við og hlusta á börn. Ég var mjög upprifin þegar ég byrjaði að lesa hana. Höfundar bókarinnar telja manni trú um það að með því að sætta sig við og taka mark á tilfinningum barna getur maður komist hjá rifrildum og átt miklu farsaelli samskipti en ella. Ég efast ekki um að þetta sé rétt. Jón Logi er bara svo lítill ennþá. Ætli það skipti ekki mestu máli núna að vera samkvæmur sjálfum sér. Setja upp veggina. Mamma og pabbi verða ekki ánægð ef ég geri þetta, hvorki í dag né á morgun né nokkurn tíma...

2003-05-07

hef ég ákveðið að gefa ykkur annað tækifæri til að fylgjast með mínu viðburðaríka lífi hér í Sverige.. Ég fer ekkert út í dag. Ég missi af fyrirlestri um Inversion theory, fundi doktorsnema í jarðeðlisfræði í Uppsala háskóla og kannski það afdrifaríkasta af öllu, kóræfingu í kvöld. Kórinn minn OK-kórinn eins og hann er kallaður er í samvinnu við 2 aðra kóra, hljómsveit og fleiri að æfa nýtt verk sem á að frumflytja á sunnudaginn í Dómkirkjunni. (Þegar ég segi Dómkirkjunni, þá á ég auðvitað við Uppsala Domkyrka, stærsu kirkju á Norðurlöndum, hverri kórinn minn er starfræktur við). Verkið fjallar um Birgittu, sænskan dýrling sem verið er að minnast í ár vegna 700 ára fæðingarafmælis og það að ég missi af æfingunni þýðir nánast að ég get ekki fengid að vera með í uppsetningu verksins. Ástæðan: ÉG ER LASIN! Er komin með mikinn hita og það sem er undarlegast af öllu, enga hálsbólgu, engan hósta, ekkert hor... bara hita og beinverki og innilokunarkennd...